Það er margt sem myrkrið veit,
– minn er hugur þungur.
Oft ég svarta sandinn leit
svíða grænan engireit.
Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur.

Sofðu, unga ástin mín,
– úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín, 
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.

Sofðu lengi, sofðu rótt,
seint mun bezt að vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
meðan hallar degi skjótt,
að mennirnir elska, missa, gráta og sakna.

Bíum bíum bambaló, bambaló og dillidillidó
Vini mínum vagga ég í ró
En úti biður andlit á glugga.


© 2023 Frederique Peckelsen. All Rights Reserved.